|
Höfundur: Jón
|
|
28.07.2008 - kl. 00:16 |
|
10 dögum fyrir landsmót fórum við með 3 hryssur suður á land undir 2 vetra fola, Alvar frá Selfossi, son Álfadísar og Dalvars frá Auðholtshjáleigu, svakalega hálsfallegur foli með vígalegar hreyfingar. Við fórum með Eldingu frá Hrafnagili og tvær ungar hryssur undan Væng frá Brúnum þær Dívu frá Árgerði og Karitas-Lilju frá Uppsölum. Á fyrsta degi landsmóts fréttum við að Alvar sé fallinn, skar sig á fæti og blæddi út, þvílíkur skaði bæði fyrir eigendur og hrossaræktina
mynd Jens Einarsson
|
|
Síðast uppfærð ( 07.08.2008 - kl. 23:27 )
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
27.07.2008 - kl. 23:56 |
|
Gæðingurinn mikli Þokki frá Kýrholti fór frá okkur í morgun en hann hefur haft 25 hryssur hjá sér s.l 5 vikur í Grýtuhólfinu. Þetta voru þung spor að sjá á eftir honum en hann er víst að fara út til eigenda sinna fljótlega og ég er ekki í vafa að þar fer einn glæsilegasti stóðhestur landsins.
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
11.06.2008 - kl. 01:16 |
|
Dósent er heldur betur að láta að sér kveða þessa dagana því á s.l. 2-3 vikum hafa verið sýndar 3 hryssur undan honum í 1 verðlaun en það eru þær Kleópatra og Líf frá Möðrufelli og Lonta frá Laugasteini
Nú hafa verið sýnd 13 afkvæmi undan Dósent og 7 þeirra hlotið 1 verðlaun og geri aðrir betur því ekki hafa alltaf verið leiddar undan hann bestu hryssur landsins.
mynd Anna Guðrún
Hér er mynd af Kleópötru og dómurinn á
næstu síðu
|
|
Síðast uppfærð ( 08.08.2008 - kl. 22:54 )
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
11.06.2008 - kl. 01:05 |
|
Stóðhesturinn minn fyrrverandi Vængur frá Brúnum var sýndur fyrir stuttu í Danmörku af Agnari Snorra og fékk hvorki meira né minna en 8,22 fyrir sköpulag og 7,89 í aðaleinkunn og á helling inni því hann var rétt búinn að jafna sig eftir veikindi og ekki í fullri þjálfun, svo er hann víst vakur líka. Nú er gaman að eiga þrjá árganga af folöldum undan honum og ég hafði alltaf haft trú á að hann ætti eftir að sanna sig.
dómurinn hér að neðan
heimild Worldfengur
DIZ Osterbyholz
Dagsetning móts: 01.06.2008 - Mótsnúmer: 07
IS-2003.1.65-541 Vængur frá Brúnum
Sýnandi: Agnar Snorri Stefánsson
Mál (cm):
140 128 136 66 144 38 46 46 6,5 31,0 18,0
Hófa mál:
V.fr. 8,0 V.a. 8,4
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson
Mál (cm):
143 140 66 146 29,0 18,0
Hófa mál:
V.fr. 8,2 V.a. 7,4
| |
|