|
Höfundur: Administrator
|
|
24.12.2008 - kl. 11:27 |
|
Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þökkum allar heimsóknirnar á síðuna okkar.
Jólakeðja frá Hrafnagili
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 02:51 |
|
Stóðhestefnið Jarpur frá Hrafnagili sem við eigum með Páli á Flugumýri og er á 5 vetri lofar mjög góðu að sögn Palla. Hann kom feitur og flottur úr Landeyjunum frá Sæunni og Halldóri á Lágafelli í haust og hefur stækkað og þroskast mikið frá í fyrra. Hann er með mikið og gott brokk og viljugur og stutt að sækja töltið en palli er með þeim reyndari í bransanum þannig að hann er í góðum höndum. Ég ætla að fara á nýju ári og mynda gripinn.
Jarpur er undan Kormáki frá Flugumýri og Eldingu frá Brún og vann á sínum tíma folaldasýningu HEÞ og ungfolasýningu Náttfara í Eyjafjarðarsveit.
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 02:43 |
|
Stóðhesturinn Ragnar-Elías frá Hrafnagili sem við eigum með Einari og Hugrúnu systir er til sölu. Hann er 5 vetra og er á Hólakoti hjá Auðbirni og Ester. Ragnar er undan Flótta frá Borgarhóli og Fjöður frá Gili sem er náskyld Gust frá Hóli. Hann er líklega alhliða með mikinn vilja og fótaburð, einnig prúður.
mynd Ester og bjössi, sjá nánar á holakot.net
|
|
Síðast uppfærð ( 21.12.2008 - kl. 13:01 )
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 02:10 |
|
Um áramót hættir Indriði sem hefur verið s.l. 2 mánuði og hefur hann unnið gott starf. Jónas í Litla-Dal ætlar að temja sín hross sjálfur eftir áramótin en höfum ráðið Þorbjörn Hrein Matthíasson ( Lúlla ) sem ætlar að temja fyrir okkur 1/2 daginn og verðum við áfram með aðstöðu á Melgerðismelm. Lúlli er með mikla reynslu og er góður sýnandi sem hefur líka náð langt á keppnisbrautinni, var fyrir stuttu valinn íþróttaknapi Léttis og erum við mjög ánægð að hafa fengið hann til liðs við okkur.
Hér eru Lúlli og Kleópatra hin gullfallega Dósentsdóttir á Einarsstaðamóti fyrir nokkru mynd AGG
|
|
Síðast uppfærð ( 21.12.2008 - kl. 02:30 )
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 01:55 |
Hér er geldingur sem heitir Hrafn frá Hrafnagili og gæti orðið flottur 4 gangshestur. Hann er á 5 vetri undan Flótta frá Borgarhóli og Kolbrá frá Kvíarhóli.
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 01:42 |
Hér er hryssa á 5 vetur, Steinka frá Hrafnagili sem verður að standa undir nafni :) Dóttir Hryms frá Hofi og Perlu frá Hrafnagili. Hún er vel viljug og fór strax í fínan höfuðburð. er með allan gang og mig líst bara vel á hana. Hún var sama og ekkert tamin í fyrra, veiktist illa en náði sér uppúr því. Perla hefur gefið eina 1. verðlauna hryssu sem heitir Eldborg frá Eyri undan Oddi frá Selfossi.
|
|
Síðast uppfærð ( 21.12.2008 - kl. 11:58 )
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
21.12.2008 - kl. 01:31 |
|
Nú eru öllu ungu tryppin okkar orðin reiðfær á Melgerðismelum og líst manni bara vel á framhaldið hvað svo sem verður.
Hér er hryssan Hrefna frá Hrafnagili á 4 vetur undan Kolbrá frá Kvíarhóli og Hrym frá Hofi. Fer vel af stað, er fljót að læra og einkar geðgóð.
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
14.11.2008 - kl. 11:51 |
|
Dósent frá Brún verður okkar aðal stóðhestur næsta sumar. Hann er fyrir löngu búinn að sanna sig sem kynbótahestur og ætlum við með okkar aðal hryssu undir hann, hana Söru frá Víðinesi aðal.eink 8,29
Auk hans notum líka þá hesta sem við eigum hlut í, Hóf frá Varmalæk, Kjarna frá Þjóðólfshaga og Mátt frá Torfunesi.
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
14.11.2008 - kl. 11:05 |
|
Hrafnagil og Litli-Dalur hafa hafið samstarf á Melgerðismelum og réðum við til okkar tamningamann frá Akureyri. Nú þegar eru komin 14 hross á hús og allt komið á fullt. Aðstaðan á Melunum er fín, góðar reiðleiðir og inniaðstaða í nýrri höll. Við ætlum að fylgjast vel með og birta fréttir og myndir reglulega.
|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 71 - 80 af 181 |