Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
Höfundur: Jón   
14.04.2009 - kl. 14:23

llli_og_hrefnaHér er svo Hrefna Hrymsdóttir en Hrymur vieðist ætla að passa vel á móti hryssunum okkar og ljóst að hann verður mikið notaður á komandi árum

náði ekki nægilega góðri mynd í reið þessi verður að nægja í bili.  Hrefna á eftir að skora hátt í byggingu og er með fína hæfileika, á 4 vetur og ekki eins langt komin og Steinka.

 
Fr
Höfundur: Jón   
14.04.2009 - kl. 14:13
llli_og_steinkaÉg fór til Lúlla fyrir páska og leit á tamningartryppin mín og leist bara vel á þau.  Hér á myndinni er Steinka undan Hrym frá Hofi og Perlu frá Hrafnagili. Ég gaf henni mikið nafn á sínum tíma og hún virðist ætla að standa undir því, svaka fótaburðahryssa og vel vökur líka.  Spennandi að sjá hvað hún skorar í framtíðinni
Síðast uppfærð ( 16.04.2009 - kl. 21:31 )
Nánar...
 
Bl
Höfundur: Jón   
04.03.2009 - kl. 21:34

Við ætlum með Blæ frá Hrafnagili sem er undan Söru frá Víðinesi og Forseta frá Vorsabæ á ungfolasýningu Suðurlands þann 21 mars n.k.  Blær verður 2-ja í vor og ætlum við okkur að nota hann svolítið í sumar.  Hann er lofthár og fallegur að framan og með mikinn fótaburð, strax upp af fetinu. Við komumst ekki sjálf á sýninguna en Óli Pétur ætlar að sjá um þetta fyrir okkur eins og þegar við fórum með Væng frá Brúnum og Jarp frá Hrafnagili um árið.3245791672_dfe11046a3

Blær á ungfolasýningu á Akureyri um daginn

 
Flipi fr
Höfundur: Jón   
01.03.2009 - kl. 23:43

Við Hrafnagilsbændur ætlum að vera með glæsi hestinn og gæðinginn Flipa frá Litlu-Sandvík næsta sumar en Flipi er undan Glæsi frá Litlu-Sandvík og Hendingu frá Stóra-Hofi.  Flipi er með 8,38 í aðaleinkunn, 8,26 fyrir sköpulag og 8,47 fyrir kosti.  Töltið er hans aðall og skeiðið og er hann strax farinn að skila góðu.  Katrín frá Litlu-Sandvík sem var í 8 sæti á LM 2008 í 4 vetra flokki er dóttir hans, svakalega falleg hryssa. Svo veit ég af virkilega spennandi afkvæmum undan honum sem ég sá fyrir sunnan um daginn þannig að þau virðast ætla að verða fljótt til. Hér er svo mynd af Flipa 

 phpthumbMynd af hestar847.is

Síðast uppfærð ( 01.03.2009 - kl. 23:43 )
Nánar...
 
N
Höfundur: Jón   
20.02.2009 - kl. 23:16

Miðvikudaginn 28 jan s.l. var haldið námskeið á Melgreðismelum með Guðlaugi Antonssyni um byggingu hrossa.  Það var mjög fróðlegt og gagnlegt og maður lærði mikið á þessu, nauðsynlegt fyrir alla sem eru að stunda hrossarækt.  Hrossin okkar og Jónasar og Kristínar voru leidd fram og þau byggingardæmd, og fengu einkunnir sem komu misvel út eins og við mátti búast.  Hæstu einkunn hlaut Hrefna, hryssa á 4 vetur sem við eigum undan Kolbrá frá Kvíarhóli og Hrym frá Hofi og fékk hún 8.20 út, hvergi einkunn undir 8.0 og þrjár 8.5

Hrefna dómur : 8-8,5-8,5-8-8-8,5-8-8=8,20

Hreyfing frá Hrafnagili kormáksdóttir var líka með ágætis einkunn. Dómur  7,5-8-8-8,5-8-7,5-8=7,98 út.

Fjóla frá Hrafnagili Flóttadóttir fékk eftirfarandi einkunn:  7-8-8-8-8,5-7,5-7-7=7,78

Mynd af Hrefnu

hrefnanet

Síðast uppfærð ( 20.02.2009 - kl. 23:32 )
Nánar...
 
H
Höfundur: Jón   
17.02.2009 - kl. 11:01

Við höfum ákveðið að bjóða annan eða báða hlutina okkar í Hóf frá Varmalæk til sölu því við höfum ásamt Gretti bróður keypt 1/6 hlut af HEÞ í stóðhestinum Hrym frá Hofi.  Hrymur minnir mann svolítið á Hrímni gamla og eigum við 2 efnilegar hryssur undan honum í tamningu núna.

Ef þú hefur áhuga að eignast í Hóf hafðu þá samband annaðhvort í síma 8921197 eða í gegnum imail  

thumb_hofur This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it hraf This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Síðast uppfærð ( 17.02.2009 - kl. 11:11 )
 
Mynd af okkur Berglindi
Höfundur: Jón   
01.02.2009 - kl. 22:39

vidÞað er hvergi til mynd af okkur Berglindi hér á síðunni þannig að núna veit fólk hver við erum en þessi mynd er tekin á Þorrablóti í Holtum 2006 á heimavelli Berglindar.

 
Af Melunum
Höfundur: Jón   
01.02.2009 - kl. 02:58

Lúlli er kominn á fullt og eigum við bara þónokkur efnileg tryppi þar á ferð,  Það eru t.d. nokkur Flóttabörn, Kormáksdóttir á 7 vetri og 2 Hrymsdætur.  Þetta lofar góðu og ætlunin er að mynda tryppin nú fljótlega og ætla ég að setja einhverjar myndir af því hér á síðuna.  Þá gengur mjög vel með Jarp á Flugumýri og verður gaman að sjá hvernig hann þróast hjá Palla.

Hér er Jarpur á 3 vetri

pict0457

Síðast uppfærð ( 01.02.2009 - kl. 02:59 )
 
Folaldas
Höfundur: Jón   
01.02.2009 - kl. 02:50

Jæja þetta gengur ekki lengur, búinn að vera alltof latur við að skrifa, því ýmisslegt hefur gerst uppá síðkastið

Folalda og ungfolasýning Náttfara var haldin fyrir 3 vikum á Melgerðismelum og tókst hún vel að vanda og margt af fallegum folöldum.  Enn voru áberandi folöld undan þeim feðgum Flótta frá Borgarhóli og Væng frá Brúnum. Flóttadóttirin Kend frá Bringu sigraði merfolaldaflokkinn og við áttum svo 2 hestfolöld í úrslitum af 6 og lenti Óðinn í 2 sæti.  þeir eru báðir undan Væng og svo komst Útrás frá Hrafnagili líka í úrslit í merfolaldaflokki.

Síðan var úrslitasýning á vegum HEÞ og Léttis haldin í dag í nýju höllinni á Akureyri og var hún glæsileg og margt um manninn. Að sjálfsögðu sigraði í flokki hestfolalda glæsilegur foli undan Væng frá Brúnum sem Hugga systir og Einar mágsru_sonurr eiga, fallega gerður með miklum, mjúkum og svifmiklum hreyfingum og er þetta 3 árið í röð sem Vængur á fulltrúa í 1 sæti á folaldasýningu, glæsilegur árangur.  Vængur er að erfa frá sér fallega byggingu og fótaburð, hann fékk sjálfur 8,22 fyrir byggingu í fyrravor.  Afkvæmin eru með háttsettan háls með miklum makka og fylgir þeim mikil útgeislun, eru frekar stygg við manninn til að byrja með eins og Vængur var, en gefa sig fljótt þegar farið er að eiga við þau.

Síðan sýndum við Blæ frá Hrafnagili í ungfolasýningunni, Forseta og Söru-son á 2 vetri og tókst það mjög vel, hann er með svaka fótaburð og er rúmur og fallega gerður, hefur myndarskapinn frá móðurinni.  Ég á eftir að finna mynd til að setja inná síðuna af honum og læt bara núna eina gamla frá því hann var nýfæddur

 

 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 61 - 70 af 181