Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
Gæðingurinn Hrymur
Höfundur: Jón   
09.08.2009 - kl. 12:12

Eftir daginn í dag verða 15 hryssur hjá Hrym frá Hofi.  það er nú bara í meðallagi og á vonandi eftir að fjölga

á næstunni. 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:53 )
 
Lánshryssur
Höfundur: Jón   
06.08.2009 - kl. 10:31

Við eigum orðið svo marga hluti í stóðhestum að við urðum að fá lánaðar hryssur.  Síðustu ár höfum við verið í samskiptum við þau heiðurshjón í Árgerði, Magna og Dísu og þau hafa leigt okkur vel ættaðar hryssur, t.d Gná frá Árgerði sem er undan Bliku og Stíganda frá Sauðárkróki, Græju frá Árgerði sem er móðir Vonar frá Árgerði en hún er hátt dæmd hryssa með 8,60 fyrir hæfileika.  Hrefna frá Árgerði er ein og hún er sammæðra Hreyfingu frá Árgerði og í vor fór hryssan Týja undan henni í 1. verðlaun.  Svo síðast en ekki síst ættarsprengjan Birta frá Árgerði 1. verðlaunahryssa undan Snældu gömlu og Hrafni frá Holtsmúla og héldum við henni undir Blæ frá Hrafnagili en það eru nú um 18 hryssur hjá honum.

 gnaargerdiHér er glæsihryssan Gná og Þokkadóttir frá því í vor

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:54 )
 
Hrymur að koma
Höfundur: Jón   
21.07.2009 - kl. 10:55

Gæðingurinn og kynbótahesturinn Hrymur frá Hofi kemur norður í vikunni og verður í hólfi hjá okkur.  Það er stefnt á að sleppa honum á miðvikudag eða fimmtudag þannig að við hvetjum alla til að hafa samband og koma með hryssur því hann er að gefa svo geðgóð og auðveld hross með fallegan frampart og fótaburð.  Hvet alla til að fara á hryssa.is og skoða þar video af Hrym síðan Siggi Sig var með hann um árið.

Síminn minn er 892-1197

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:54 )
 
Höfundur: Jón   
21.07.2009 - kl. 10:35

Glæsilegu Íslandsmóti er nú lokið og gaman að sjá alla þessa gæðinga samankomna og suma þeirra í síðasta skipti hérlendis.  Síðan var haldin grillveisla og ball í Top reiter höllinni um kvöldið og var vel tekið á því og verð ég að viðurkenna að hafa farið langt langt yfir strikið, þannig að jaðri við minnisleysi :) en einu mundi ég þó eftir þegar ég vaknaði á sunnudagsmorgni, Það var þegar Einar mágur minn á Brúnum fór að tala um við mig og fleiri hve Markús frá Langholtsparti væri í flottu formi, bæði hálslangur og bolléttur þannig að ég andaði léttar og hugsaði að það hefðu nú verið fleiri en ég sem fóru yfir strikið :) :)  Maður þarf nú að innbyrgða ansi mikið til að bara hreinlega detta þetta í hug.  Cool   

Það var líka gaman að fá að hafa tvo snillinga í gistingu í síðustu viku, þá Þorvald Árna og Guðmund Björgvins í Kirkjubæ, en það kom ekki til af góðu því öll gistirými voru uppfull fyrir norðan þannig að þeir voru í bílsskúrssvítunni okkar en líkaði held ég vel.  

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:55 )
 
Flestar hryssur kastaðar
Höfundur: Jón   
23.06.2009 - kl. 18:37

Síðustu vikur hafa nær allar hryssurnar okkar kastað og höfum við verið heppin með hlutföllin

Sara frá Víðinesi átti rauðan hest undan Kjarna frá Þjóðólfshaga

Keila frá Bjarnastaðahlíð átti gráan hest (fæddur rauður) undan Þokka frá Kýrholti

Perla frá Hrafnagili og Gná frá Árgerði og Kolbrá frá Kvíarhóli eignuðust allar hryssur undan Þokka frá Kýrholti, býsna laglegar allar.

Móna frá Árgerði eignaðist rauðstjörnótta hryssu undan Andvara frá Akureyri og Bleikála frá Árgerði eignaðist brúnan hest undan Dósent frá Brún.  

Elding frá Hrafnagili kastaði jarpri hryssu undan Alvari frá Efri-Gegnishólum, sem fórst á sorglegan hátt í fyrrasumar og erum við ein af örfáum sem fengum folald undan honum í ár.

Skotta frá Hrafnagili átti brúnt hestfolald undan Andvara frá Akureyri

Fröken frá Brún er óköstuð við Kappa frá Kommu og einnig Viðja frá Víðinesi við Dósent

 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:56 )
 
Hrymur fr
Höfundur: Jón   
29.05.2009 - kl. 22:56

Var að fletta yfir dóma á Worldfeng og gladdist yfir því að sjá hvað Hrymur er að koma sterkur inn, komin 5 í 1. verðlaun.  Líka hvað Rökkvi er að stimpla sig inn og líka alveg orðið tímabært.  Svo eru Perla og Kolbrá  báðar kastaðar og áttu báðar hryssur undan Þokka frá Kýrholti.

 
Fyrstu fol
Höfundur: Jón   
10.05.2009 - kl. 18:50
Fyrstu folöldin hjá okkur fæddust í gær.  Við fengum jarpa hryssu undan Mola frá Skriðu og Lilju frá Æsustöðum sem er undan Hljóm frá Brún og svo kastaði Dís frá Brún ( alsystir Dósents ) brúnum hesti undan Ágústínusi frá Melaleiti.
 
D
Höfundur: Jón   
21.04.2009 - kl. 21:34

Nú er verið að útbúa plakat af Dósent og afkvæmum hans og ætlum við félagar að dreifa því út um allt land. Rósberg tók málið að sér enda 110 % maður í svona málum.  Það verður ekki af Dósent tekið að hann er framúrskarandi kynbótahestur eins og ég hef oft tíundað hér á síðunni.  Dósent fékk góðan dóm strax 4. vetra, m.a. 9,0 fyrir fegurð í reið, 8,5 fyrir tölt og brokk svo eitthvað sé nefnt.  Það er aukinn áhugi á að nota Dósent því það er ekki dýrt miðað við hvað hann er að skila. Fyrir sunnan er þekkt gæðingamóðir mjög líklega á leið undir Dósent.  Svo er áhugi hjá hrossaræktardeild úti á landi sem vill jafnvel leigja hann næsta sumar.  Okkar bestu hryssur fara undir hann í sumar, þær Sara, Keila og Perla, þær kasta snemma og ætlunin er að fara svo undir Hrym næsta vor á húsi en hann verður ekki hér fyrr en á seinna tímabili í sumar.  Fáir stóðhestar hafa skilað Matthísasi í Möðrufelli meira en Dósent, Þær Líf, Kleópatra, Gola og Ólga allar Dósentsdætur.  Dósent er vel ættaður og standa sterkir einstaklingar á bak við hann, kíkið endilega á það í worldfeng.  Það er laust undir Dósent og hafið endilega samband

 

 

Síðast uppfærð ( 21.04.2009 - kl. 21:36 )
 
Flipi kemur ekki
Höfundur: Jón   
20.04.2009 - kl. 15:55
Flipi frá Litlu-Sandvík verður ekki í sumar hjá hrossaræktarfélaginu Hrímni í sumar eins og til stóð.  Það á víst að keppa á honum í sumar og kemur því ekki norður.  Frown 
Síðast uppfærð ( 21.04.2009 - kl. 20:49 )
 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 51 - 60 af 181