Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
LM diskurinn
Höfundur: Jón   
10.10.2009 - kl. 16:02

Óli Pétur vinur minn oft kenndur við Litlu-Sandvík var hjá mér um daginn að sækja hryssur sem hann hélt undir Hrym frá Hofi og litum við aðeins á LM diskinn um kvöldið og spáðum í stóðhesta.  Óli spáir mikið í hlutum sem aðrir eru ekki að velta sér uppúr og það er fullt af villum sem hann er búinn að taka eftir.  Eitt af því er þegar ruglast er á kappa frá Kommu og Hóf frá Varmalæk, þeir eru líkir þarna en Hófur er með leist á vinstri aftur fæti, þess hefur kannski þurft til að ná að setja saman video af Kappa vegna geðslagstruflana sem hann var síðan verðlaunaður fyrir með 8,5 í einkunn fyrir vilja og geðslag sem er náttúrulega algjört hneyksli.  Svo ég vitni nú í annan snilling, Gylfa Gunnars tamningamann sem segir að hestar endurspegli oftast eigendur, þ.e. séu þeir fýldir séu hestarnir það líka og svei mér þá að það eigi nú bara við með Kappa og ræktandann eftir að hafa kynnst þeim báðum.......   

Síðast uppfærð ( 18.10.2009 - kl. 21:44 )
 
Sara og Hringur
Höfundur: Jón   
18.09.2009 - kl. 23:39

Einar á Brúnum sendi mér mynd af Söru og Hring, nýfæddum þann 10 júní síðastliðinn.  Það er enginn Markúsarháls á þessum :)  Skásettir bógar og allur pakkinn og verður hafður ógeltur en er farið að langa í hryssu undan Söru og vona ég að Dósent lagi það næsta vor.  Söru verður svo haldið undir Hrym frá Hofi næst.

 sara_og_hringur.3

Síðast uppfærð ( 18.09.2009 - kl. 23:56 )
Nánar...
 
Hrymur
Höfundur: Jón   
29.08.2009 - kl. 23:05

Ég var að skoða afkvæmi Hryms frá Hofi í Worldfeng og nú eru komin 7 hross í 1. verðlaun og 4 alveg við 1. verðlaun og 4 í 7.80 og yfir. Þetta verður að teljast gott því yfirleitt eru þetta klárhross og aðallinn þeirra er töltið og fyrir sköpulag er ekkert undir 8,5 fyrir háls/herðar og mörg með 9.0 enda hann sjálfur með fallegan frampart.

hrymur_hofi

 
Blær
Höfundur: Jón   
29.08.2009 - kl. 16:31

Blær okkar frá Hrafnagili sem er aðeins 2 vetra gamall undan Söru og Forseta hefur haft nóg að gera í sumar en það voru 17 hryssur hjá honum í sumar, þar af tvær 1. verðlauna hryssur að vísu á okkar vegum, þær Fröken frá Brún og Birta frá Árgerði.  Álfheiður móðir 1. verðlauna stóðhestsins Eldjárns frá Ytri-Brennihóli var líka hjá Blæ en hún er Fengsdóttir frá Bringu.  Síðan vorum við með heimahryssurnar hjá honum og verður spennandi að sjá afkvæmi hans næsta vor

nýleg mynd af Blæ 

blr_2_ja_vetra

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:51 )
Nánar...
 
Tamningastöð á Grund
Höfundur: Jón   
28.08.2009 - kl. 21:29

Við munum í samstarfi við Gunnar Egilsson starfrækja tamningastöð í vetur á Grund en þar er fín aðstaða og mjög snjólétt á veturna.  Lina Eriksson hefur verið ráðin og er hún Hólaskólagengin og með munnin fyrir neðan nefið Smile.  Stefnan er svo að ráða annan tamningamann og taka hross í tamningu fyrir aðra því það vinnst miklu betur að vera tveir og líka öryggissins vegna. Inniaðstaða er á Grund og bæði básar og stíur í boði og verður gaman að byrja eftir göngur núna í byrjun október. 

Við eigum 7 merar á

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:51 )
Nánar...
 
Sörusonur
Höfundur: Jón   
21.08.2009 - kl. 13:20

Sara eignaðist rauðan hest 10 júní s.l. undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og er hann spertur og flottur, stillti sér svona flott upp fyrir mér um daginn og að sjálfsögðu verða báðar baunirnar hafðar í honum

soru_og_kjarnasonur

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:52 )
 
Fleiri girðingamyndir
Höfundur: Jón   
21.08.2009 - kl. 13:12

hrafnagil_fjall

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mynd af stóðinu síðan á þriðjudaginn

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:52 )
Nánar...
 
girðingamyndir
Höfundur: Jón   
21.08.2009 - kl. 12:49

Þessa dagana erum við að girða um 300 ha hólf í fjallinu fyrir ofan Hrafnagil og veitir ekki af bæði fyrir hross og nautgripi.  Þórarinn kaupamaður er hokinn af reyslu í uppsetningu á rafgirðingum en hann vann í 3 ár hjá Girði.  Þetta er þriggja strengja rafgirðing og er allt efni keypt í gegnum lífland frá Reykjalundi plast.

Útsýnið er alveg magnað og ótrúlega gaman að vera þarna uppfrá.  Mikið graslendi og allsstaðar lækir og sprænur. 

 

hrafnagil_fjallholf

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:52 )
Nánar...
 
Dósents plakat
Höfundur: Jón   
13.08.2009 - kl. 23:33

dsent_netupplausn

 

 Við Dósents eigendur útbjuggum plakat af meistara Dósent frá Brún með hans helstu afkvæmum.  Rósberg bar þungan af verkinu ásamt Önnu Guðrúnu í Fornhaga og höfum við dreift því víða um land. Það er samt leiðindar villa í talanröðinni fyrir hæfileika

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:53 )
Nánar...
 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 41 - 50 af 181