Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
Hálf-Mósa seld til Danmerkur
Höfundur: Jón   
13.01.2010 - kl. 14:04

Við höfum selt hryssuna okkar Hálf-Mósu frá Hrafnagili til Danmerkur og fer hún utan um 20 jan n.k. Hún Er undan Gust frá Hóli og Perlu frá Hrafnagili og er á 4 vetur. Hún er ekki mikið tamin er sýnir strax flotta takta hún er viljug, þjál og einkar geðgóð og með flottan fótaburð. Við ætluðum okkur alls ekki að selja hana en svona fór nú samt og óskum við Agnari Snorra alls hins besta með hana í framtíðinni. Perla móðir hennar er svo sannarlega að skila góðum hrossum. Eldborg frá Eyri er 1. verðlaunahryssa undan Oddi frá Selfossi og Perlu og síðan er nýlega farinn geldingur undan henni til Noregs, undan Sleipni frá Efri-Rauðalæk, mjög flottur og síðan Hálf-Mósa núna og Steinka frá Hrafnagili sem er á 6 vetur er virkilega efnileg undam Hrym frá Hofi, svakaleg fótaburðarmeri sem er núna stödd á Hólaborg hjá Ingimar Baldvinssyni í þolþjálfun og kemur fljótlega norður þar sem Lina Eriksson tekur við henni. Ég hef alltaf haft trú á Perlu því hún er mjög vel Hrafnagilsættuð, því móðir Perlu er Móa systir Hrímnis frá Hrafnagili og faðir Móu var Hvíti-Hrafn sem var afi Hrímnis og hann var einnig undan systur Hrímnis henni Hrefnu frá Hrafnagili 1. verðlauna hryssu, kannski svolítið flókið en skyldleikarækt sem heppnaðist og er Perla algjört gull í mínum augum. Mynd af Hálf-Mósu

hlf-msa

Síðast uppfærð ( 23.02.2010 - kl. 10:56 )
 
Hófur frá Varmalæk
Höfundur: Jón   
12.01.2010 - kl. 09:56

Þar sem við höfum aukið eignarhlut okkar í Hrym ætlum við að selja Hófshlutina okkar tvo og kostar hvor um sig 300.000 kr og gefur kaupanda rétt á að halda undir hann árlega þannig að þetta er bara win win dæmi og borgar sig fljótt upp. Upplýsingar í síma 892-1197 eða á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it h

hæsti dómur Hófs af Worldfeng

Sköpulag
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 8.5
Bak og lend 8
Samræmi 8
Fótagerð 8
Réttleiki 8
Hófar 8.5
Prúðleiki 7
Sköpulag 8.2
Kostir
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 5
Stökk 9.5
Vilji og geðslag 9
Fegurð í reið 9
Fet 8.5
Hæfileikar 8.43
Hægt tölt 9
Hægt stökk 9.5
Aðaleinkunn 8.34

This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:24 )
 
1/6 hlutur keyptur í Hrym frá Hofi
Höfundur: Jón   
12.01.2010 - kl. 09:43

Við höfum ásamt Sigfúsi Erni Eyjólfssyni ræktanda Hryms frá Hofi keypt 1/6 hlut Hrossaræktarsambands Vesturlands í Hrym.  Við höfum óbilandi trú á honum og ætlum að reyna að hefja hann til vegs og virðingar aftur en notkun hans var afar dræm síðasta sumar.   hæsti dómur hér

 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:24 )
Nánar...
 
Folaldasýning Náttfara 2010
Höfundur: Jón   
09.01.2010 - kl. 21:43

 

mynd af Söru og Hring nýfæddum

Í dag var haldin folalda og ungfolasýning Náttfara í Eyjafjarðarsveit og hafa held ég aldrei verið eins margar skráningar eða 42 hryssur og 24 hestar.  Í hryssuflokkinn fórum við aðeins með tvær hryssur og lentu þær í tveimur efstu sætunum og erum við virkilega sátt við það.  Hremmsa frá Hrafnagili undan Þokka frá Kýrholti og Gná frá Árgerði vann, hlaut 79 stig og var jafnframt stigahæsta folald sýningarinnar og fengum við farandbikar fyrir það sem var gefinn í fyrsta skipti í fyrra til minningar um Sigurð Snæbjörnsson á Höskuldsstöðum.  Alvara okkar varð svo í öðru sæti rétt á eftir Hremmsu með 76,4 stig en hún er undan Eldingu frá Hrafnagili og Alvari frá Syðri-Gegnishólum (undan Dalvari og Álfadís ) og sjáum við eftir að hafa ekki farið með hryssuna undan Þokka og Perlu frá Hrafnagili en hún er mjög áþekk Hremmsu.  Síðan varð Hringur undan Söru og Kjarna frá Þjóðólfshaga í 3 sæti í flokki hestfolalda með 74,6 stig. Hann er stór og með rúmar og svifmiklar hreyfingar en var dreginn niður fyrir faxleysi en hann var síðan kosinn fallegasta folald sýningarinnar af áhorfendum og var það snilldin ein.  Bréfberi var kallaður inn í úrslitin aftur en komst ekki á pall.

Síðan var Blær frá Hrafnagili í 2 sæti í flokki ungfola fædda 2007 með  73,8 stig en þeir voru aðeins tveir í þeim flokki. Sjóður frá Selfossi varð annar í flokki fæddra 2008 með 65,2 stig og Mósi undan Perlu og Rökkva frá Hárlaugsstöðum í 3 sæti með 63,4 stig.

Við unnum s.s. 6 verðlaunapeninga og 2 gjafatolla undir þá Kyljan frá Árgerði og Garp frá Hvoli báðir 1.verðlaunahestar þannig að þetta var magnaður dagur. :) :) 

 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:23 )
 
Gleðileg Jól
Höfundur: Jón   
25.12.2009 - kl. 00:21

Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum allar heimsóknirnar á síðuna okkar.   Síðan fær nýtt útlit fljótlega og forvitnilegar fréttir koma inn á næstunni sem ekki er hægt að greina frá strax

Ég fékk eina bók í jólagjöf og mæli eindreigið með henni,  þvílík snilld " mannasiðir Gillz " þetta er algjör snillingur þessi maður, hverrnig er hægt að skrifa svona mikla steypu. Gillz þú ert snillingur !!!!!!!

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:23 )
 
Kjartansstaðahrossin
Höfundur: Jón   
13.12.2009 - kl. 02:18
Ég rakst á nýja og glæsilega heimasíðu um stóðhestinn Tývar frá Kjartansstöðum nýlega og ótrúlegt að sjá Videoið af honum og Sigga Matt þar sem hann geysist um á 9,5 tölti og fegurð í reið og Knapinn haggast ekki í hnakknum.  Ég fór síðan að skoða fleiri hross frá Kjartansstöðum, m.a. Töfra og Dár og fleiri á youtube og heillaðist af mýktinni í þeim. Öll steypt í sama mótið.  Þaðan hafa komið 2 heimsmeistarar og fullt af frábærum hrossum í gegnum tíðina og Töfri og töltið hans er ótrúlegt á að horfa og síðan hvað Töfri hefur skilað yfir í Blesastaði 1A er alveg magnað að skoða. Kannski maður haldi eitthvað undir Tývar á næsta ári og Krák frá Blesastöðum
Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:22 )
 
Fröken frá Brún
Höfundur: Jón   
13.12.2009 - kl. 01:44

Ég var að kaupa mynd af Fröken okkar frá Brún af Eiríki Jónssyni ljósmyndara með meiru og vil benda mönnum að hafa samband við hann ef vantar myndir, hann á gífurlegt magn mynda sem hefur safnast saman síðustu áratugina sem er algjör fjársjóður fyrir hestamennskuna. 

Þessa mynd tók hann af Fröken á Vindheimamelum árið 2000 sem var þá 5 vetra og mér finnst hún miklu fallegri en dómurinn gefur til kynna, sérstaklega háls/herðar :) Lúlli hefur sagt mér að hún hafi átt mikið inni þá sérstaklega fyrir tölt og skeið, fótaburðahryssa en fékk þó aðeins 8.0 fyrir feg í reið

Dómurinn er síðan á næstu síðu

frkenbrn_2

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:25 )
Nánar...
 
Folöld 2009
Höfundur: Jón   
26.11.2009 - kl. 23:17

SmileÉg hef verið að velta fyrir mér og meta folöld sumarsins síðustu daga, sem urðu ansi mörg og eru mörg andskoti flott.  Fallegasta hestfolaldiið er Sörusonurinn Hringur, Kjarnasonur (Kjarna Þjóðólfshaga) risastór og flottur.  Síðan kemur Kappasonurinn undan Fröken, með fallegan frampart og á ég eftir að finna eitthvað vel valið nafn á hann :) Svo er Þokkasonur undan Keilu, spertur og forvitinn.  Síðan mætti telja Dósentson undan Bleikálu Ófeigsdóttur frá Árgerði og Kolskegg undan Dís frá Brún og Ágústínus frá Melaleiti sem við eigum með stórbóndanum á Brúnastöðum í flóa.

Af hryssunum er langflottust hryssa undan Alvari (Sonur Dalvars og Álfadísar) og Eldingu frá Hrafnagili, með svaka langan og vel settan háls, lofthá, bollétt og prúð. Síðan á ég þrjár Þokkadætur álitlegar og svo létum við frá okkur svakalega flott folald undan Mola frá Skriðu sem Birna vinkona mín og Hólmgeir fengu, við sáum það aldrei en af lýsingum að dæma var maður að tapa LandsmótsWINNER.

 

alvaraHér er komin mynd af Alvarsdótturinni og Eldingu frá Hrafnagili

 

Síðast uppfærð ( 07.03.2010 - kl. 11:25 )
 
frumtamningar ganga vel
Höfundur: Jón   
03.11.2009 - kl. 11:47

Frumtamningarnar hafa gengið mjöglíð vel og Línu líst best á Mónu Dósentsdóttir og Blíð Töfradóttir en  það verður járnað í dag og á morgun. Í fyrradag fórum við svo með þrjár í viðbót á Grund en það eru Hrefna hrymsdóttir og flóttadæturnar Hrönn og Fjóla báðar frá Hrafnagili

hrefnanet mynd af hrefnu frá í fyrra

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 31 - 40 af 181