|
Tveir fulltrúar á allra sterkustu |
|
Höfundur: Jón
|
|
03.04.2010 - kl. 19:45 |
|
Gaman að segja frá því að á ístöltkeppninni sem fram fer á eftir í Laugardal, þeir allra sterkustu eiga Dósent frá Brún og Hrymur frá Hofi báðir sinn fulltrúa þar. Þetta eru hryssurnar Líf frá Möðrufelli og Krít frá Miðhjáleigu og verður gaman að fylgjast með kvöldinu |
|
|
|
|
Sara undir Orra frá Þúfu 2010 |
|
Höfundur: Jón
|
|
20.03.2010 - kl. 00:26 |
|
Jæja við erum komin með toll í vor undir Orra sjálfan frá Þúfu og ætlum með Söru frá Víðinesi í það verkefni en hún hentar frábærlega í það, lofthá og hálslöng. það er ekki hægt annað en að viðurkenna það að það toppar enginn Orra sama hvað menn hníta út í hann. Farið bara í Worldfeng og skoðið það, þetta er náttúrulega rugl hverju hann hefur skilað í gegnum tíðina og verðum að prófa gamla líka.
Við fáum vonandi einnig Krákstoll og ef svo fer mætum við með Báru-Brá frá Litlu-Sandvík úr ræktun Óla Péturs vins okkar sem er mjög skyldleikaræktuð út af Höfða-Gusti frá Sauðárkróki og er systir Stöku frá Litlu-Sandvík móðir Tenórs frá Túnsbergi. Bára-Brá er með þeim allra fallegustu í bransanum og einhver magnaðasta ætt sem ég veit um á bakvið hana. Sjá worldfeng
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
07.03.2010 - kl. 17:51 |
|
Við keyptum um daginn Hrymsdótturina Hrund frá Ytra-Dalsgerði á 5 vetur eða öllu heldur skiptum á öðrum Hófshlutnum okkar og er hún nú í tamningu á Grund hjá Linu.
Hrund er undan Kjarvalsdótturinni Gýju frá Ytra-Dalsgerði og er m.a systir skeiðgarpsins Hnikars frá Ytra-Dalsgerði og á 3 1. verðlauna systkyni, þau eru Isafold, Gima og Lektor öll frá Ytra-Dalsgerði
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
07.03.2010 - kl. 17:24 |
|
Við settum video inn á youtube af Söru frá Víðinesi frá því á LM 2008 og geta menn séð það þar
|
|
Nánar...
|
|
|
Jæja allt að komast í lag |
|
Höfundur: Jón
|
|
07.03.2010 - kl. 17:21 |
|
Við höfum ekki getað skrifað neitt í þónokkurn tíma en við vorum að flytja síðuna okkar frá EJS yfir til 1984.is og við flutninginn fór ýmislegt úrskeiðis. T.d allir íslenskir stafir og fl. en vonandi komið í lag.
Ýmisslegt hefur gerst í hrossaræktinni, en við fórum í hestakaup við Flugumýrarhjónin Pál og Önnu, en þau fengu Jarp frá Hrafnagili og við fengum í staðinn 15 vetra gamla hryssu hana Skör frá Geirlandi. Skör er fylfull við Seið frá Flugumýri sem setti glæsilegt heimsmet 4 vetra, 8,42 í aðaleinkunn.
Sjá dóm á næstu síðu
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
01.02.2010 - kl. 22:55 |
|
Jæja hér er loksins komið video af gæðingnum Hrym frá Hofi sem Vignir Sigurólason tók árið 2006 í Þjólfshaga þar sem Hrymur var í þjálfun hjá Sigga Sig. Hann minnir mann óneitanlega á Hrímni gamla frá Hrafnagili enda keyptum við í honum vegna þess og vonum að hann eigi eftir að skila okkur sambærilegu. Þetta er algjör gæðingur eins og sést á videoinu
7 |
|
Síðast uppfærð ( 01.02.2010 - kl. 23:18 )
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
30.01.2010 - kl. 15:41 |
|
Ég Googlaði Hrímni gamla áðan og rakst þá á þessa grein sem birtist í morgunblaðinu 12.11.2007
Í minningu Hrímnis hins fagra Þuríður Magnúsína Björnsdóttir skrifar
mbl.is
Hrímnir frá Hrafnagili hvílir nú gömul bein undir húsvegg í Skagafirði. Þessi óumdeildi gæðingur hreif alla tíð fjöldann með sér, lærða sem leika, og er mörgum eftirminnilegur sem hvíta hestagullið í kvikmyndinni Magnús. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir fékk nýja sýn á Hrímni sem uppalanda í stóði eigandans, Björns Sveinssonar á Varmalæk.
|
|
Síðast uppfærð ( 23.02.2010 - kl. 10:54 )
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Jón
|
|
28.01.2010 - kl. 23:18 |
|
Jæja þá er Hrymsdóttirin okkar Steinka loksins komin norður en hún kom að sunnan rétt áðan. Lina Erikson tamningakona og kennari sem er m.a að temja fyrir okkur verður með hana og búin að bíða lengi, því alltaf var hún að koma
mynd frá í fyrra rétt reiðfær
|
|
Síðast uppfærð ( 23.02.2010 - kl. 10:55 )
|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 21 - 30 af 181 |