|
Höfundur: Administrator
|
|
13.12.2006 - kl. 22:03 |
|
Von er á fleiri hrossamyndum á heimasíðuna hjá okkur, bæði af ræktunarhryssunum og söluhrossum, eins af tryppum í uppeldi. Svo er á leiðinni mynd af Hvíta-Hrafni fljótlega og verður gaman að fá svo dýrmæta mynd í safnið |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
09.12.2006 - kl. 01:13 |
Þeir félagar á Hvoli hafa nú ákveðið að folatollur undir glæsihestinn Rökkva frá Hárlaugsstöðum sem verður eins og áður segir á vegum hrossaræktarfélagsins Hrímnis seinna tímbil ´07 kosti 60.240 kr + vsk, auk sónars og hagagjalds. Þetta er fagnaðarefni fyrir hrossaræktendur norðan heiða því maður er að heyra að topphestar af svipuðum toga og Rökkvi, hækki gríðarlega næsta sumar.. Rökkvi er án efa einn af mest spennandi stóðhestum landsins og afkvæmi hans hafa farið mikinn á folaldasýningum undanfarið og maður hefur heyrt af álitlegum afkvæmum undan honum sem byrjað er að temja.
|
|
Síðast uppfærð ( 09.12.2006 - kl. 01:15 )
|
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
06.12.2006 - kl. 13:34 |
|
Hrossaræktarfélagið Hrímnir verður með Landsmótssigurvegarann og gæðinginn Rökkva frá Hárlaugsstöðum til afnota seinna tímabil 2007 og verður gaman að geta boðið uppá slíkan gæðing hér norðan heiða og norðlenskir ræktendur hafa tekið því fagnandi og rúmlega 20 manns pantað nú þegar.
Nánar auglýst síðar |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:12 |
|
Þokkadóttirin okkar Sara frá Víðinesi fór í 1.verðlaun á kynbótasýningu í kópavogi í maí 2006 og var sýnd af Jakobi Sigurðssyni, 8,02 í aðaleinkunn, hennar helstu tölur voru 9,0 fyrir háls og herðar og fyrir brokk, og 8,5 fyrir fegurð í reið. Sara hækkaði síðan aftur á kynbótasýningu á Dalvík í júní og fór í 8,08 í aðaleinkunn, 7,99 í byggingu og 8,14 í hæfileika |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:11 |
|
Nýlega keyptum við Keilu frá Bjarnastaðarhlíð af Baldvin Ara Guðlaugssyni á Akureyri, hún er undan Keili frá Miðsitju og Hlíðar-Gránu frá Bjarnastaðarhlíð, grá að lit mikil fótaburðarhryssa, er samt svolítið spennuviljug og var sýnd í vor(2006) á Sörlastöðum en mistókst algjörlega, lækkaði í hæfileikum en hækkaði í byggingu. Keila er nú fylfull við Forseta frá Vorsabæ. Þess má til gamans geta að hún er systir Lyftingar frá Bjarnastaðahlíð sem hefur m.a. hlotið 10 fyrir hægt tölt og 9,0 fyrir fegurð í reið í kynbótadómi, dóttir Gusts frá Hóli |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:10 |
|
Á folaldasýningu Náttfara í Eyjafjarðarsveit í janúar s.l á Melgerðismelum urðu Kraftur frá Hrafnagil og Gormur frá Hrafnagili 2 af 5 sem komust í úrslit í flokki hestfolalda og endaði Kraftur í 3 sæti. Af þeim 5 folum sem komust í úrslit voru 2 Flóttasynir frá Borgarhóli og hafa folöld undan Flótta oftar en ekki verið í úrslitum síðustu ár. Vængur varð svo annar í flokki 3 vetra graðhesta á sömu sýningu. |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:08 |
|
Síðast uppfærð ( 21.12.2006 - kl. 15:05 )
|
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:07 |
|
Jarpur frá Hrafnagili varð í 1.sæti í flokki hestfolalda á úrslitasýningu HEÞ á Dalvík 20 mars 2005 með nokkrum yfirburðum. Jarpur er undan Kormáki frá Flugumýri og Eldingu frá Brún, en Hreyfing frá Hrafnagili,alsystir hans varð í 3 sæti á sömu sýningu fyrir 2 árum eftir að hafa verið kosin fallegasta folaldið hjá hrossaræktardeild Náttfara í Litla-Garði 2003. |
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
04.12.2006 - kl. 09:06 |
|
Eldborg frá Eyri, dóttir Perlu frá Hrafnagili og Odds frá Selfossi fór í 1. verðlaun á kynbótasýningu nú í vor 2005. 8,13 fyrir byggingu og 7,95 fyrir hæfileika og á örugglega eftir að hækka meira. |
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 171 - 180 af 181 |