Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
Sara komin undir Orra frá Þúfu
Höfundur: Jón   
25.05.2010 - kl. 08:05

Sara frá Víðinesi fór undir Orra frá Þúfu í fyrrakvöld og væntingarnar eru strax orðanar miklar,  Svo fór Perla undir Herjólf frá Ragnheiðarstöðum og Beta frá Litlu-Sandvík fór undir Dug frá Þúfu og Hörpu frá Selnesi var haldið undir Hrym frá Hofi í gær.  Ég og Páll Hjálmarsson á Akureyri sem á gæðingshryssuna Eldingu frá Blönduósi fórum á stað á Sunnudagsmorgun og komum við hjá Tryggva Björnssyni sem er að temja Andvara frá Akureyri, unda Eldingu og Adam frá Ásmundarstöðum og er hann virkilega álitlegur, verður næsta bomba held ég.   Við gistum svo í Pulu hjá þeim Daníel og Guðbjörgu sem var virkilega gaman að venju.  Daníel sýndi okkur svo Dug og Ágústínus frá Melaleiti og þeir eru rosalegir báðir tveir.

 
Mynd af Sörudóttir
Höfundur: Jón   
19.05.2010 - kl. 00:13

Nánar...
 
Folöld 2010
Höfundur: Jón   
18.05.2010 - kl. 22:41

Loks eru farin að fæðast folöld hjá okkur. Perla frá Hrafnagiliátti rauða hryssu undan Blæ frá Hrafnagili, Sara frá Víðinesi 2 átti loksins hryssu undan Dósent, svakalega flotta með frontinn yfir meðallagi. Kolbrá frá Kvíarhóli átti Jarpa hryssu undan Blæ og Teista frá Stóra-Vatnskarði brúna hryssu undan Hóf frá Varmalæk

 

myndin er af hryssunni undan Perlu og Blæ okkar sem er nú 3 ja vetra

 

Síðast uppfærð ( 18.05.2010 - kl. 22:42 )
 
Hrymur
Höfundur: Jón   
16.05.2010 - kl. 23:51

Þessi mynd er tekin af Hrym um mánaðarmótin apríl/maí á Hvoli í ölfusi með 9,0 hálsinn sinn :) Það er hver að verða síðastur að panta undir hann í sumar en það er ljóst að Hrymur er kominn aftur í tísku.

Síðast uppfærð ( 16.05.2010 - kl. 23:54 )
 
Glúmur frá Svarfhóli
Höfundur: Jón   
03.05.2010 - kl. 16:46

Síðast uppfærð ( 03.05.2010 - kl. 18:16 )
Nánar...
 
Meira um Hrym
Höfundur: Jón   
03.05.2010 - kl. 00:28

 

Eftir sýninguna hjá Fáksmönnum í gær hafa nokkrir haft samband í dag og pantað undir gamla og einn mjög stórtækur hrossaræktandi á suðurlandi sem kemur með 7 hryssur á ári í 5 ár takk fyrir. Þetta eru menn með hreðjar segi ég nú bara og gaman að þessu. Svo er bara að vona að Hrymur haldi þjálfunina út og löppin haldi

Síðast uppfærð ( 03.05.2010 - kl. 00:40 )
Nánar...
 
Endalaus óheppni
Höfundur: Jón   
01.05.2010 - kl. 21:30

 

Hrymur er kominn með hita og fer því ekki á Fákssýninguna í kvöld en þar verða 2 glæsilegir fulltrúar hans þær Krít frá Miðhjáleigu og Dögg frá Steinnesi

 

Síðast uppfærð ( 03.05.2010 - kl. 00:07 )
Nánar...
 
Hrymur á stórsýningu Fáks
Höfundur: Jón   
21.04.2010 - kl. 23:48

Hrymur frá Hofi mun koma fram á stórsýningu Fáks 1 maí ásamt afkvæmum en hann fékk eins og flest hrossin á Hvoli og víða hóstapestina sem nú geysar um allt land.  Hrymur er kominn í fanta form og verður gaman að sjá hann loksins koma fram á nýjan leik og margir sem hafa séð hann hjá Þorvaldi nýlega, hafa haft samband og pantað undir hann í sumar.  Hrymur hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin ár, þ.e kvíslbandsbólgu en við vonum nú að það hafi bara lagast og hann geti mætt öflugur á keppnisbrautina enda á besta aldri.  Svo er bara að mæta á stórsýningu Fáks 1 maí og berja hann augum auk fjölda annara glæsihrossa. 

Svo langar mig að biðja þá sem eiga efnileg Hrymsbörn í tamningu og eins þeir sem ætla að sýna Hrymsbörn að hafa samband við mig því stefnan er að taka á móti 1. verðlaunum fyrir afkvæmi á LM 2010, Hrym vantar aðeins 7 sýnd afkvæmi til að hljóta þau. Sendið annað hvort imail á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it eða hringið í síma 8921197

 
Hálfmósa
Höfundur: Jón   
18.04.2010 - kl. 18:36

Hálfmósa sem við sögðum hér frá fyrr í vetur að væri að yfirgefa landssteinana nú í janúar s.l fór aldrei og segi ég nú sem betur fer og ég held að mig hafi verið ætlað að eiga hana og er ekki viss um að hún verði nokkurntíma seld.  Hún stóð frá 16 des s.l fram til seinnipartinn í mars því alltaf var hún á leiðinni út og verður þ.a.l. ekki tilbúin fyrir sýningu í vor en hún er virkilega álitleg. Síðast liðna helgi kom hér einn fremsti knapi okkar norður yfir heiðar og prófaði hana og aldrei að vita hvort hún muni koma fram á síðsumarssýningu, leist mjög vel á og ég set kannski video af henni hér fljótlega.  Hálfmósa er undan Perlu frá Hrafnagili og Gust frá Hóli.  Gáskablóðið virðist passa fínt á hryssurnar héðan því síðast þegar það var reynt kom Haukur frá Hrafnagili og nú Hálfmósa sem á eftir að verða flott, fótaburður á hægu, allur gangur, frábært geðslag en mætti vera fallegri en Hrymur gamli lagar það held ég :) 

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 11 - 20 af 181