|
Höfundur: Administrator
|
|
03.12.2006 - kl. 17:30 |
|
Eigendur og ábúendur á Hrafnagili eru: Jón Elvar Hjörleifsson og Berglind Kristinsdóttir. Við keyptum jörðina Hrafnagil vorið 2000 af Benedikt Hjaltasyni og fjölskyldu, en við bjuggum þá gengt árinnar á Ytra-Laugalandi með um 50 kýr þar sem ég fæddur og uppalinn. Í dag erum við Berglind með um 180-190 kýr ásamt geldneytum og erum með 912.464 lítra mjólkurframleiðslu. Þá eigum við einnig Ytra-Laugaland að hálfu og að mestu land jarðarinnar á Brúnum þar sem systir okkar og mágur, Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason búa með hross og sauðfé. Á Ytra-Laugalandi alast geldneytin upp.
12 janúar 2006 tókum við í gagnið svokallaða mjaltahringekju sem gerir okkur kleyft að mjólka 30 kýr í einu og taka mjaltir nú aðeins rétt 4,5 klst á dag í stað 10 klst. Einnig starfrækjum við túnþökusölu á sumrin og byrjuðum á því sumarið 2006. Hrossaræktin fer vaxandi hjá okkur ár frá ári en fyrst og fremst er þetta út af ánægjunni og höfum við gaman af allri ræktun og okkur fannst skylda að halda áfram að framrækta þau hross sem Hjalti Jósepsson gerði um 50 ára skeið, og oft með frábærum árangri. Við höfum keypt hryssur síðustu ár frá Hrafnagili eða ættaðar héðan og svo er bara að bíða og sjá hvað kemur út úr því.
|
|
Síðast uppfærð ( 30.12.2007 - kl. 14:17 )
|