Hrafnagil


Hrossarækt - sala
Horse Breeding - Horse Sale
Gistihús - Guesthouse

Veldu leturstærð

Increase size Decrease size Revert styles to default
Fréttir
Uppáferðir sumarsins
Höfundur: Jón   
31.08.2010 - kl. 22:56

 

Við höfum haldið undir ýmsa hesta í sumar eins og áður hefur komið fram hér en ég fór að taka þetta saman og held að við höfum misst okkur alveg þetta sumarið......... :)

fyrst ber að nefna að...

Sara frá Víðinesi er fylfull við Orra frá Þúfu

Keila frá Bjarnastaðahlíð við Hrym frá Hofi

Fröken frá Brún vonandi við Roða frá Garði

Perla frá Hrafnagili við Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum

Beta frá Litlu-Sandvík við Eldjárni frá Tjaldhólum

Harpa frá Selnesi við Hrym frá Hofi

Blanda frá Hrafnagili við Dósent frá Brún

Viðja frá Víðinesi við Dósent frá Brún

Skotta frá Hrafnagili við Mósa frá Hrafnagili (undan Perlu og Rökkva frá Hárlaugsstöðum)

Kolbrá frá Kvíarhóli við Mósa

Hrafntinna frá Hrauni við Mósa

Teista frá Stóra-Vatnsskarði við Mósa

Elding frá Hrafnagili er hjá Hrym

Bylgja frá Litlu-Sandvík er hjá Hrym

Bára-Brá er hjá Hrym

tvær merar frá Höfða í þverárhlíð eru hjá Hrym

hryssa sem við eigum með Friðrik Kjartanssyni er fylfull við Hrym

Bleikála frá Árgerði við Hrym frá Hofi

Maí-Stjarna frá Ytra-Skörðugili er hjá Hófi frá Varmalæk (eigum 50% með Hólakotsfjölskyldu)

Eik frá Dalvík er hjá Kvisti frá Skagaströnd (Stígsdóttir frá Kjartansstöðum)

Skör frá Geirlandi er fylfull við Seiði frá Flugumýri

Frökk frá Vopnafirði er hjá Hrym frá Hofi

Hreyfing frá Hrafnagili er hjá Jarli frá Árgerði

Drift frá Garði er hjá Hákoni frá Ragnheiðarstöðum

held að ég hætti núna..................

 

 

 
Slemma í 1 verðlaun
Höfundur: Jón   
29.07.2010 - kl. 08:26

 

Hrymsdóttirin Slemma frá Sauðanesi fór í 1 verðlaun í skagafirðinum í gær með 8,09 í aðaleinkunn.  8,11 fyrir sköpulag og 8,08 fyrir hæfileika.  Enn eitt Hrymsafkvæmið með 8,5 fyrir háls og herðar og í dómalýsingunni er hún sögð skrefmikil og fótaburður mikill.  Síðan veit ég um  mjög álitleg afkvæmi sem á eftir að sýna en þau eru t.d.

Glúmur frá Svarfhóli

Jökull frá Staðartungu

Krít frá Miðhjáleigu

Framtíð frá Þverá Skíðadal

Von frá Syðra-Kolugili

Berglind frá Húsavík

Ungfrú Ástrós frá Blönduósi

Héla frá Garðshorni

Fáskrúð frá Gillastöðum

Elvý frá Litla-Garði

Sigursteinn frá Húsavík

Steinka frá Hrafnagili

Fálki frá Búlandi

Og fleiri þannig að það verður spennandi næstu misserin

 
Brúða í flottar tölur
Höfundur: Jón   
27.07.2010 - kl. 22:51

Brúða frá Torfunesi fór í 1 verðlaun í dag á Vindheimamelum en hún er vígaleg klárhryssa undan Hrym frá Hofi og Röst frá Torfunesi.  Hún fékk 9.0 fyrir tölt, brokk og feg í reið og gaman hvað Hrymur er að skila fasmiklum hrossum með fallegri frambyggingu.  Síðan eru skráð nokkur í viðbót bæði í skagafirðinum og fyrir sunnan og munum við að sjálfsögðu fylgjast með því.

 
Fréttir
Höfundur: Jón   
21.07.2010 - kl. 16:42

Perla frá Hrafnagili gengur nú með þriggja vikna gamalt fyl við Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum en Herjólfur er 4 vetra Gýgjarssonur sem er víst svakalega efnilegur en er ennþá ósýndur.  Steinka, Perlu og Hrymsdóttir er öll að koma til eftir kvefpestina og verður vonandi sýnd í ágúst og á örugglega eftir að vekja athygli fyrir fas og fótaburð en hún er í þjálfun hjá Lúlla á Möðrufelli.  

Hálf-Mósa systir hennar á 4 vetur undan Gust frá Hóli en nú komin í fjallið hér heima og bíður bara vetrarins. 

Við erum nú að fara að innrétta hesthús hér á Hrafnagili en við eigum allt í það, bæði einangrun og innréttingar og verður gaman að hafa loksins hesthús hér á hlaðinu.  Síðan ætlar Þórhallur (Tóti)  kvennagull sem hefur verið síðasta eina og hálfa árið hjá Daníel og Guðbjörgu í Pula að temja að vera hjá okkur í vetur.  Hann gat valið úr atvinnutilboðum að hans sögn og valdi að koma norður til okkar og byrjar í september, við erum náttúrulega mjög ánægð með það.  það verður allt lagt undir í vetur enda LM 2011 og sterkur árgangur að koma inn.

Við höfum einnig eignast aftur stóðhestinn okkar Jarp frá Hrafnagili frá Palla og Önnu á Flugumýri og fær Tóti að keppa á honum en hann er efni í sterkan 4- gangara.

 

 
Fröken undir Roða
Höfundur: Jón   
14.07.2010 - kl. 08:46

Við erum nú búin að halda þónokkrum hryssum þetta sumarið

Eins og áður sagði þá er Sara fylfull við Orra frá Þúfu

Harpa frá Selnesi við Hrym

Fröken fór undir Roða frá Garði sem er svakalega hátt dæmdur klárhestur, 8,46 í sköpulagi og 8,33 í hæfileikum

Perla er hjá Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum

Blanda og Viðja eru hjá Dósent

Eik frá Dalvík fór undir Kvist frá Skagaströnd

Setti fjórar undir Mósa frá Hrafnagili, Perlu og Rökkvason

Frökk frá Möðrufelli fór undir Hrym

Svo bíða nokkrar eftir Hrym en hann kemur um næstu helgi norður.

 

 
Harpa frá Selnesi fengin við Hrym
Höfundur: Jón   
01.07.2010 - kl. 00:37

Ég fór með Feykisdóttirina okkar Hörpu frá Selnesi í sónar í morgun en henni var haldið um 25 maí undir Hrym en Hrymur hafði fengið háan hita nokkru áður og það virðist ekki hafa haft áhrif á hann.  Fór síðan með hana og Söru uppí 300 hektara fjallhólfið okkar.  Hrymur kemur norður miðjan mánuðinn og bíða hans þá margar merar.

 

 
Loka-sonur
Höfundur: Jón   
23.06.2010 - kl. 23:55

 

Fékk senda mynd í kvöld af 3ja daga gömlu glæsilegu hestfolaldi undan Loka frá Selfossi og Frökk frá Vopnafirði.  Við Ketill á Brúnastöðum eigum Frökk saman og ég á að halda henni núna og að sjálfsögðu er hún komin undir Hrym.  Frökk er að sjálfsögðu undan Dósent frá Brún og Fröken frá Brún, 1 verðlauna hryssu sem ég á einnig.  Frökk slasaðist á öðrum vetri og löppin er öll í steik en hún var tamin í mánuð á 4 verti og var virkilega álitleg en heltist þá.  Ég á alsystir hennar sem er tveggja vetra núna.

 
Sara fengin við Orra frá Þúfu
Höfundur: Jón   
22.06.2010 - kl. 00:54

Sara frá Víðinesi er nú fengin við Orra frá Þúfu og er fylið 21 dags gamalt, argandi snilld því Orri gamli á líklega ekki mörg ár eftir. Svo er alltaf að fjölga undir Hrym fyrir sunnan og eftir morgundaginn verða yfir 20 merar hjá honum og svipað sem bíður hans hér heima. Dósent fór í hólf hér heima í dag og setti ég Blöndu frá Hrafnagili og Viðju frá Víðinesi(systir Söru) líka. Svo fer Blær í hólf næstu daga og ef einhver vill þá er hægt að koma hryssum til hans.

Síðast uppfærð ( 22.06.2010 - kl. 10:47 )
 
Enn fleiri folöld
Höfundur: Jón   
13.06.2010 - kl. 20:45

Keila frá Bjarnastaðahlíð kastaði á fimmtudaginn var, vígalegu brúnu hestfolaldi undan Auð frá Lundum. Líst bara mjög vel á það og verð heppinn ef það heldur tönnunum, slíkur er fótaburðurinn :)  Birta frá Árgerði sem ég fékk að halda í fyrra undir Blæ minn kastaði rauðu hestfolaldi fyrir ca viku og flest folöldin undan Blæ eru falleg.  Ég setti einnig þær Teistu frá Stóra-Vatnsskarði, Hrafntinnu frá Hrauni, Skottu frá Hrafnagili, Kolbrá frá Kvíarhóli undir Mósa frá Hrafnagili sem er undan Perlu og Rökkva frá Hárlaugsstöðum.  Maður verður að halda í kynið og gera eins og Hjalti og Pálína heitin gerðu svo oft og með góðum árangri.  Perla er einmitt þannig tilkomin. 

Síðan eru að tínast hryssur undir Hrym fyrir sunnan og von er á fleirum,  hann kemur svo norður og ætla ég að halda þónokkrum undir hann en einnig ætla ég að setja  þær Blöndu og Viðju undir Blæ.

 
Hrymur í hólf í Landeyjum
Höfundur: Jón   
01.06.2010 - kl. 10:42

Þar sem ekkert Landsmót verður í ár breytast allar áætlanir og þjálfun Hryms er lokið í bili og fer hann í hólf á vegum hrossaræktarfélags Austur-Landeyinga eftir helgina.  Þeim sem hafa áhuga á að koma hryssum undir hann er bent að hafa samband við Sigrík í síma 8937970 eða Jón á Miðhjáleigu í síma 8946406.  Tollurinn er á mjög sanngjörnu verði 78.000 kr með öllu og margir búnir að panta

d

 
Sara komin undir Orra frá Þúfu
Höfundur: Jón   
25.05.2010 - kl. 08:05

Sara frá Víðinesi fór undir Orra frá Þúfu í fyrrakvöld og væntingarnar eru strax orðanar miklar,  Svo fór Perla undir Herjólf frá Ragnheiðarstöðum og Beta frá Litlu-Sandvík fór undir Dug frá Þúfu og Hörpu frá Selnesi var haldið undir Hrym frá Hofi í gær.  Ég og Páll Hjálmarsson á Akureyri sem á gæðingshryssuna Eldingu frá Blönduósi fórum á stað á Sunnudagsmorgun og komum við hjá Tryggva Björnssyni sem er að temja Andvara frá Akureyri, unda Eldingu og Adam frá Ásmundarstöðum og er hann virkilega álitlegur, verður næsta bomba held ég.   Við gistum svo í Pulu hjá þeim Daníel og Guðbjörgu sem var virkilega gaman að venju.  Daníel sýndi okkur svo Dug og Ágústínus frá Melaleiti og þeir eru rosalegir báðir tveir.

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 15 af 183